03.07.2009 11:30:53 / birgrad
Austurlandsdeild Birgráðs gerði víðreist suður á bóginn og fór til veiða ásamt Reykjavíkur/Selfossdeild. Austureyjarbóndinn gaf góðfúslegt leyfi til veiða í Apavatni og Hólaá og byrjuðum við í Apavatni. Lítið gekk með fluguna en Biggi náði tveimur urriðum á spúninn, eins og tveggja punda. Við fluttum okkur svo í Hólaána og náðust tvær bleikjur, Biggi náði annarri á þurrflugu og ég fékk hina á spúnfluguna Reflex.
Veiðin í sumar hefur klárlega ekki verið nógu stíft stunduð en stefnt er að bæta úr því á komandi vikum. Ég hef skotist í Eiðavatnið öðru hvoru og náð nokkrum bleikjum og Biggi veiddi 30 murtur um daginn ásamt tveimur bleikjum. 8. júlí förum við í Fnjóská, stefnan er svo sett á silungasvæðið í Hofsá eða Breiðdalsá.
Einar
»
26.04.2009 15:35:22 / birgrad
Búinn að fara þrisvar að veiða í vor.
Komst 1. apríl í blöðin fyrir að standa í skítaandskotans kulda út í Vífilsstaðavatni. Ís ennþá vestast á vatninu og var gjörsamlega tíðindalaust. Vorum tveir.
Fór með systur minni í Meðalfellsvatn snemma mánaðar einnig í sól og blíðu. Það var skemmtileg ferð. Tókst að spæna inn eitt stykki 60cm hoplax, grindhoraðan og ljótan. Baráttan var einkar stutt, var rétt á nibbunni á nebbanum. Honum var sleppt, eins og lög gera ráð fyrir um. En fiskur kominn á land þetta veiðisumarið. Urðum ekki vör við eitt eða neitt það sem eftir var þessa dags.
Svo var það Varmáin. Fórum tveir með eina stöng. Hittum aðra tvo sem einnig vorum saman með stöng. Fylgdum þeim eftir. Byrjuðum við stöðvarhúsið. Sáum tvo en settum ekki í neitt. Fórum niður á bakka og stíflu. Sáum nokkra, fengum nokkur högg. Hinir tveir fengu sitt hvorn og misstu einn til, mjög fallegir fiskar í kringum 5-6pundin. Eftir hlé fórum við aftur við stöðvarhúsið og gengum niður að gömlu brú. Sáum lítið en börðum mikið. Hinir tveir misstu tvo og fengu einn titt. Röltum til baka og enduðum við stöðvarhúsið. Vorum að hætta þegar félaginn setti í einn í beygjunni við stöðvarhúsið, stökk og hreinsaði sig, en líka af flugunni, virkaði flottur. Hættum korteri seinna. Skemmtilegur dagur í allskonar íslensku vorveðri. Snjór, rok, logn, sól, rok, él, rigning og rok.
Ekkert farið eftir þetta. En veiðifélagið Birgráð kemur saman á vorþingi 30. apríl næstkomandi og haldið verður til veiða í tilefni þess þá um helgina, líklega í Kleifarvatn.
Birgráð.
p.s. reyni að rifja upp seinni hluta síðasta sumars seinna.
»
15.01.2009 21:59:12 / birgrad
Nú er þetta hreinlega komið á það stig að mann er farið að kítla í fingurna og verkja í öxlina... það styttist veiðidrengir og stúlkur! Það styttist!
»
05.07.2008 19:23:14 / birgrad
Sælt fólk!
Birgráð Aðalráðbjarnárðarsonráð hér!
Við spúsa vor héldum í ferðarlag á fimmtudaginn síðastliðinn. Smelltum okkur á Vopnafjörð, áleiðis til Melrakkasléttu, áleiðis til Ásbyrgráðs ætthöfðingja. Þegar á Vopnafjörð var komið þurftum við að skella okkur í verslun, sem ég man nú ekki hvað heitir, en til stóð að fara í einhverja bensínstöð og bæta á spúnasafið sem hefur farið nánast til helvítis sökum gríðarlegs veiðiálags. Ég fór ekki í bensínstöð á Vopnafirði því ég hélt að allar bensínstöðvar landsins hefðu allavega Toby til sölu! Ég hefði betur gert mér leið í bensínstöðina þar, því þarna eru jú tvær af helstu laxveiðiám landsins og væntanlega til eitthvað af veiðidóti þó ég viti það ekki fyrir víst. En hvar sem ég leitaði í öllum krummaskuðunum sem á leið okkar voru, var hvergi að finna nokkra spúna, utan nokkra bryggjuveiðispúna á Bakkafirði.
Hvað um það, þá stoppuðum við í 45 mín í Hraunhafnarvatni í 15metrum á sekúntu, þoku og skítakulda, strax í fyrsta kasti minkaði í spúnaflotanum, því sökum vankunnáttuminnar á staðarháttum kastaði ég beint í bjarg úti í vatninu og einn einn spúnn frá mér þá fastu í vatni, svo gott sem. En úr þessu rættist því þegar ég færði mig og fór að kasta á móti vindi gerðist það!! Það var elt í hverju kasti og loks tók flottu pundara urrði, í næstu köstum var þetta eins og annar náðist á land, þá var frúin komin í spilið og heimtaði að fá að kasta og var ekki lengi að fá fisk, en svo dó þetta bara. En þetta var gott stopp þarna og gaman hefði verið að vera með fluguna þarna en það var nánast óhæft sökum vinds.
Daginn eftir um kvöldið eftir miklar göngur um Byrgi Áss og fossinn Detti, þó komum við í Kringluvatn og fallegt veður tók á móti okkur og fiskur gjörsamlega að vaka úti um allt. Fátt um það að segja annað en ég náði 15 smábleikjum á land og allar fengu þær líf og allt var það tekið á fluguna. Ágústa fékk tvær kokgleyptar, sem því miður misstu líf sitt vegna þess. En það var á í öðru hverju kasti þarna á fluguna og ekki hefði skemmt fyrir ef fiskurinn hefði verið aðeins stærri og mývargurinn fáliðaðri, en ég er marbitinn eftir þann varg! Nóg að sinni.
»
02.07.2008 18:21:16 / birgrad
Átti leyfi í Bjarglandsá í gær. Við Einar skelltum okkur ásamt Ágústu minni, enda henni að þakka að ég hafði þetta leyfi undir höndum, áttum fyrri vakt. Veðrið var okkur ekki hagstætt, drullurok og rigning dauðans og til þess að gera langa sögu stutta, var þarna ekkert að fá, enda gjörsamlega á byrjun tímabilsins hérna fyrir austan og ekki sjógenginn fiskur komin lengra en að landi og hugsanlega í einhverja ósa...
Á heimleið ákváðum við að stoppa við gömlu brúna yfir Eyvindarána og kíkja hvort við sæjum einhvern fisk og það var ekki um að villast, þarna voru hylir pakkaðir af bleikju, þannig að það var ákveðið að bíða eftir því að hægt væri að kaupa hálfan dag, sem er klukkan þrjú. Einar var mættur í hylinn á slaginu, en þá var áin orðin græn, sem hafði verið alveg skínandi tær tveimur og hálfum tíma fyrr, og varla fisk að sjá, nema rétt þegar við fórum úr hylnum, búnir að pakka saman. Á þessum tíma var veðrið ennþá ágætt þannig að við fórum annað í ána, þar sem við höfðum tveim dögum fyrr tekið fjórar bleikjur. En það var náttúrulega sama þar, áin ótrúlega græn og óveiðileg, við vorum bara að berja með flugu til skiptis. Þá gerðist veðrið líka andstyggilegt og barði á okkur með roki og rigningu, þannig að við fórum heim með fluguna í augntóftinni.
Eftir að hafa eldað okkur um kvöldið hamborgara og einhvern svakalegasta eftirrétt allra tíma, var veiðiþorstinn orðinn nógur til þess að við ákváðum að skella okkur með spúninn aftur í ána, en það var algjör óþarfi því þá var Eyvindur orðinn grár fyrir járnum og neitaði með öllu að láta henda í sig einhverju brotajárni og tók á móti okkur eins og Jökulsá á Fjöllum, þannig að við bara skiluðum veiðiskýrslunni tómri og fórum grátandi heim.
Birgráð
»
30.06.2008 14:58:20 / birgrad
Ýmislegt hefur drifið á daga meðlima Birgráðs undanfarið. Biggi fór og veiddi einhverja tits í Húsatjörn þegar hann átti að vera að passa börn og síðan ákváðum við félagar að skella okkur í Eyvindaána og veiða bleikjur í soðið. Ég náði að tæla eina bleikju upp úr Brúarhylnum á meðan Biggi og frú brutu veiðistöng og villtust í skóginum. Síðan héldum við neðar í ána þar sem Ágústa náði að veiða eina rúmlega punds bleikju. Eftir það tókum við smá pásu og héldum svo upp með ánni en gáfumst upp á því og ætluðum að fara í ósinn. Á miðri leið sáum við álitlegan bleikjustað og náði ég fljótlega einni á spúninn meðan Biggi var eitthvað að gaufa með fluguna. Ég færði mig neðar og náði þar annarri sem var tæp 2 pund. Næst þegar ég lít á Bigga snýr hann baki í ána og er kominn í knattspyrnu við bleikju sem spriklaði á bakkanum. Eitthvað leiddist henni að láta Bigga sparka í sig og klobbaði hann og hélt aftur á heimahagana í Eyvindaránni
Biggi náði loks að landa annarri á fluguna áður en við hættum. Aflinn var því sex bleikjur milli punds og upp í tvö.
Á laugardaginn skelltum við okkur svo ásamt Ágústum okkar tveim í Geitdalinn. Þegar þangað var komið uppgötvaði ég að ég hafði gleymt veiðihjólinu fyrir Ágústu og flugunum mínum og einnig höfðu maðkarnir orðið eftir. Við náðum þó að bjarga okkur með það sem við höfðum en Biggi landaði eina fiskinum sem veiddist, rúmlega 2 punda urriða. Veðrið var ekki vænlegt, rigning og skítkalt.
Hluti sunnudagsins fór svo í að kanna Jökluslóðir, enga fiska sáum við en áin var nokkuð tær og leit vel út, kíkjum eflaust á hana síðar í sumar. Á morgun er stefnan svo sett á Bjarglandsána, fleiri fréttir síðar.
Myndir af bleikjunum eru á myndasíðunni.
Einar
»
25.06.2008 19:58:39 / birgrad
Ég var búinn að skrifa brjálæðislega færslu hér í gær sem datt alveg út!
En hef mikið veitt undanfarið og veitt 21 urriða undanfarið, flesta um pundið en einn flottan tveggja punda. Orðið vitni að einum þriggja punda og einum 7 punda dreka! Skrifa kannski betur þegar ég hef jafnað mig á klúðrinu á síðunni!
»
20.06.2008 12:42:54 / birgrad
Þar sem ég ligg þessa dagana í sumarfríi og græt mig í svefn sökum fjarveru Birgráðs ákvað ég í gær að manna mig upp og halda til veiða í Gilsá í Fljótsdal. Las ég einhversstaðar að þar væri hægt að veiða eftir vatnavexti og hélt ég af stað í skítakulda og almennu leiðindaveðri. Áin rennur í allsvakalegu gili en ég lét það ekki á mig fá heldur klöngraðist niður í gilið líkt og Stallone í Cliffhanger. Þegar niður var komið áttaði ég mig á því að þarna myndi ég aldrei komast upp aftur og því eins gott að einhversstaðar væri önnur undankomuleið. Byrjaði ég því að veiða og ekki leið á löngu þar til fiskur var á, en það reyndist vera urriði, rúmlega pund að þyngd. Veiddi ég mig áfram upp gilið og ekki leið á löngu þar til ég sá flóttaleið úr gilinu og tókst mér með herkjum að klifra þar upp. Þá tók við þéttur frumskógur sem ég var í tómu basli að klöngrast í gegnum með veiðistöngina. Loks tókst mér að troðast í gegn og finna veginn og prufaði að kasta nokkrum sinnum í ósinn þar sem áin rennur í Lagarfljótið en ekki voru golþorskarnir þar.
Mæli ekki með þessari á.
Einráð
»
16.06.2008 17:25:28 / birgrad
Hvað er að frétta??
Jú það er ýmislegt!
Fór ásamt Birki í Vífilsstaðavatn á mánudaginn síðasta, fengum nokkur högg og ein dvergbleikjan stökk á eftir flugunni en náði ekki að drepa sig og enginn kom á land...
Á þriðjudaginn fór ég ásamt Guðbirni fiskifælu Tryggvasyni og Ingva bróður hans í Apavatn á fisklausan stað í vatninu en fengum samt tökur en lönduðum engum!
Ekkert var svo gert það sem eftir var vikunnar, það var ekki fyrr en ný vika byrjaði að við Ágústa héldum til móts við Birki í Þingvallavatn núna í morgun... það var gaman!
Strax í þriðja kasti var komin murta á, nokkrar murtur í viðbót létu blekkjast af agni okkar í morgun og ein stærðar bleikja sem Birkir missti, en það var ekki fyrr en eftir hádegishlé að hlutirnir fóru að gerast af einhverri alvöru. Þá var set í hvert tröllið af öðru og stangirnar svignuðu og bognuðu, en þær eru sniðugar bleikjurnar og hrissta sig af allar nema EIN en var hún aðeins minni en þær sem sluppu... Sú gleypti við einhverslags afbrigði af Killer og er komin í álpappír og er á leiðinni á grillið!
Veiðitölur dagsins eru þá þær:
Birgir:
1 Bleikja
3 Murtur
Birkir:
3 Murtur
Ágústa:
4 Murtur
p.s. bendi fólki að kíkja á "Aflatölur" hér til vinstri á síðunni!!
»
05.06.2008 19:49:07 / birgrad
Ég var bara ekki í skapi til þess að skrifa fyrr um Fögruhlíðarána... Kannski ekki margt um hana að segja: Í stuttu máli þá var glampandi sólskin, 20 metrar á sekúntu, sandrok, mýrardrulla, fastur bíll, módrullugt fljót, enginn fiskur og brotin flugustöng! Sem sagt KÚKUR!!!
Í dag kom Svenni í heimsókn og við ákváðum fyrir löngu síðan að fara að veiða, tókum Einar með okkur og héldum í Skriðuvatnið og Múlaána. Það var nú töluverð gjóla þegar við fórum af stað og þegar við komum að vatninu leit það út eins og stórsjór með öldugangi og vitleysu!! Hentum nokkrum sinnum í útfallinu af vatninu þar sem Múlaáin tekur við og skemmst frá því að segja að við urðum ekki varir... eftir einhvern klukkutíma eða rétt rúmlega það færðum við okkur um stað og köstuðum fimm sinnum í mitt vatnið við þjóðveginn.NADA!!
Þaðan fórum við svo í hálftíma í Haugtjarnirnar, strákarnir voru með maðk og aðra beitu en ég var með fluguna, þeir fengu ekki neitt en ég landaði þremur Haugatröllum á heimatilbúin Peter Ross, missti þrjá og fékk tvö högg í viðbót, þar af var eitt höggið mjög magnað miðað við annað sem gerist þarna í Haugum og gæti ég því trúað að þar hafi verið Haugaskrímslið sem sögur fara af en enginn hefur séð en fleiri einungis heyrt talað um...
Ég sleppti nú þessum fiskum, en sökum klúðurs í því að losa fluguna úr einum var hann orðin að grænmeti og vildi ekki synda í burt, þannig að hann er á leið í reykkofann...
Kveð að sinni
Birgráð
»
01.06.2008 11:35:03 / birgrad
Ég vil biðjast afsökunar á litlu efni undanfarið, jobbið að klárast og smá tímaleysi undanfarið er ástæða þess.
En um síðustu helgi fór ég ásamt bróðurfélagi Birgráðs, Veiðitörfunum í Meðalfellsvatn í Kjós. Með í för var einning Guðbjörn fiskifæla Tryggvason (hann tilheyrir engu veiðifélagi, enda aldrei veitt fisk). Þegar við komum að vatninu sáum við mikið líf og uppítökur voru út um allt! Við komum okkur fyrir á góðum stað og byrjuðum að kasta maðki og flugu. Þá kemur Veiðitarfurinn á staðinn með ölið flæðandi úr hverri andlitsholu, nema náttúrulega Guðmundur sem keyrði. Á endanum tókst þeim nú að setja saman græjurnar og koma sér fyrir í vatninu. Og það leið ekki á löngu þangað til fyrsti fiskurinn var kominn á land, en það var Gummi með sinn fyrsta fluguveidda fisk! Urriðinn um hálft pund eða svo og tók Black Zulu ef ég man rétt. Birkir tók þann næsta eftir miklar fluguskiptingar og var það ákaflega hommalegur en skínandi fínn Appelsínugulur Nobbler sem var of ómótstæðilegur fyrir þennan samkynhneigða urriða. Þá var svo komið að ég færði mig aðeins um stað, þar sem Guðbjörn hafði verið að veiða og séð fullt en ekki landað neinu. Þegar hann fór af svæðinu þá varð allt vitlaust! Tveir glæsilegir tröllvaxnir dvergurriðar féllu fyrir forljótum heimatilbúnum ónýtum Peacock. Það sem sagt verður að hafa Guðbjörn með í svona ferðum en hafa hann bara langt í burtu þegar maður er að veiða, þá gerast hlutirnir. Birkir heyrði af þessu og kom á miðin og var fljótur að setja í einn, og var það ágætur pönnufiskur á Peacock. Síðasti fiskurinn var svo bleikja sem sjálfsagt hefur verið á flótta undan stærri fiski á vatninu því ég er ekki viss um að ég hafi fundið mikið fyrir því þegar ég dró hana inn, en hins vegar er þetta fysta bleikja sumarsins og verður minnst sem slíkrar. Góðu veiðikvöldi lokið og sex fiskar komu á land. Takk fyrir ferðina strákar!
Í síðustu viku á þriðjudaginn skellum við Ágústa okkur í Urriðavatnið enn einusinni. Skemmst er frá því að segja að það sáust uppítökur og tveir greinilegir fiskar en þeir veiddust ekki, enda hvessti mikið þegar líða fór á þennan klukkutíma sem stoppað var og þá er ekki hægt að veiða þarna skilst mér.
Laugardagurinn byrjaði með þynku dauðans eftir staffadjamm hér á Brúarási. Hringdi í Einráð að ræða framhald... hann hugðist ekkert gera þennan dag annað en að væla úr sér þynkuna, þannig að ég hætti að tala við hann, en hann hringdi aftur tveim mínútum seinna hringdi hann og tilkynnti að hann vildi fara að veiða. Ég sagði já og við brunuðum á Eiða og prófuðum Eiðalækinn sem rennur út í vatnið og ég var ekki einusinni byrjaður að setja saman stöngina mína þegar Einar er kominn með hann á! En þetta tröll hrissti sig af! Eftir þetta gerðist ekkert þarna! Þannig að við ákváðum að skella okkur í tjörn sem er þarna ekki langt frá og það er skemmst frá því að segja að í fyrsta kasti á spúninn var fiskur á hjá Einari og í fyrsta kasti hjá mér á maðkinn var annar á! Í fimmköstum á maðkinn komu fjórir fiskar á land hjá mér!! Ekki amarlegt það, þá var ég nú eiginlega orðinn leiður á þessu moki á maðkinn þannig að ég skipti yfir í fluguna en það er nú eiginlega þannig við þessa tjörn að hún er umlukin skógi og því ekki gott að kasta flugu þarna... ég tapaði fjórum flugum upp í tré og veiddi næst minnsta fisk á eina sem ég hef fengið um æfina, Ágústa sagði hann vera passlegan í fiskabúr, en hann var það grunnt tekinn þannig að hann fékk líf aftur og þegar hann verður orðinn stærri og pattaralegri mun ég ná í hann! En í þessari tjörn komu á endanum 13 fiskar á land, ég tók sex Einráð fimm og Ágústa tvo. Einar fékk þann stærsta sem var fallegur og feitur urriði um pundið eða rétt rúmlega það, flestir voru svo fínar pönnusteikur og nokkrir litlir fengu líf aftur og reyndar einn dauður sem synti í burt þegar var verið að þrífa hann... svona er þetta...
En í dag liggur það fyrir að fara að opna Fögruhlíðarána hér í Jökulsárhlíðinni og vona að veðrið verði okkur hagstætt, en hér á Brúarási er það ekki gæfulegt til veiða, rok, glampasólskin og hlítt en það er spurning hvernig þetta er þarna við ósinn. Kem vonandi með krassandi sögur hér inn í kvöld!
»
23.05.2008 16:40:24 / birgrad
Í fjarveru Birgráðs skellti ég mér í Eiðavatn í heilar 20 mínútur. Halaðir inn á reflex spúninn voru urriðaþríburar, og ég missti tvo. Mynd af golþorskunum fylgir, en þeir eru áætlaðir í kringum pundið. Og að sjálfsögðu glory glory man united og Friðrik Ómar.
Einráð Hróbjartráð
»
19.05.2008 18:16:09 / birgrad
Skellti mér í Grímsána í klukkutíma í gær og fékk einn rúmlega 2 punda urriða og missti einn. Þrælsprækur djöfull sem hreyfði sig ennþá á eldhúsborðinu á Mýrum þrátt fyrir að hafa verið dauðrotaður og á þurru landi í einn og hálfan tíma. Mikið vatn er í ánni og flestir staðir nær óveiðanlegir. Á leiðinni Í Egilsstaði náði ég líka maríurjúpunni minni sem dúndraðist á framrúðuna á Aygoinum.
Einráð
»
18.05.2008 15:19:58 / birgrad
Nú er eitthvað aðeins meira að frétta af Birgráðum. Ætli maður reyni bara ekki að taka þetta í tímaröð:
Síðasta helgi, hvítasunnuhelgin. Til þess að heimsækja Birgráð komu mætir menn úr menningunni í Reykjavík og vitaskuld voru veiðigræjur hafðar með! Ekki leit veðrið neitt glæsilega út fyrir þessa helgi hérna fyrir austan, enda kom á daginn að fyrsta morguninn sem herramennirnir Anton, Friðrik og Guðmundur voru í sælunni, var hvít jörð! Ekki lá fyrir nein sérstök veiðiferð þann daginn, sem var laugardagur, heldur var tekinn góður rúntur um sveitir, en auðvitað voru stangir með í för og varð það úr að reyna að henda aðeins í Grímsána í landi Einráðs (sem þó var ekki með í þessari för, en hafði gefið leyfi). Þetta var nú eiginlega frekar upp á prinsipp frekar en mikla veiðivon enda hitastig heldur nálægt núllinu! Var þetta reynt í hálftíma án árangurs.
Hvítasunnudagurinn sjálfur var veiðidagurinn. Þar sem flestir áttu Veiðikortið var ákveðið að yfirgefa sveitarfélagið í leit að skynsamlegum veiðistað. Varð Breiðdalurinn fyrir valinu þetta skiptið, Kleifarvatn skyldi veitt! Veðrið var ekki ákjósanlegt, rigning, rok og skítakuldi lengstum. En hvað um það, frúin á Innri-Kleif vildi lítið við okkur tala því hún var að verða of sein í kirkju, sagði okkur bara að fara að veiða og tala við fólkið á bænum síðar. Stangirnar voru því settar saman og menn klæddu sig eftir veðri. Flestar gerðir agns voru prófaðar og ekkert gekk til þess að byrja með. Tóku Frikki og Gummi til þess ráðs að ganga fyrir hálft vatnið til þess að þeir hefðu vindinn í bakið. Ég og Anton vorum ekki enn komnir langt frá upphafsstaðnum á móti vindi, enda stendur einhvers staðar að ætið fari með vindi. Þá gerist það hjá mér, fimm metra frá landi fer flotið á kaf og undir er þessi fallegi urriði um pundið, hann hafði tekið makríl, tekinn á land og rotaður. Sá næsti var mun minni, líka á makíl. Við fáum okkur sjúss að þessu tilefni og Anton er kominn með appelsínugulan spún undir, fljótlega er einn urriðinn búinn að negla spúninn, viðureignin var ekki mjög löng því Anton er með stöng og hjól sem myndi varla bogna þó á hana kæmi 12 punda lax! En kappinn var gríðarlega ánægður með fiskinn og sjaldan hef ég séð spún eins kokgleyptan og þennan! Þegar þarna er komið við sögu eru bræðurnir komnir til baka, töldu sig nú hafa orðið vara við eitthvað líf þarna á hinum bakkanum og voru á leið upp í bíl að nærast. Þegar þeir fara af stað fer flotið hjá mér líka af stað og þriðji urriðinn fellur fyrir makrílnum. Eftir þetta hættir takan nánast alveg og ekkert gerist þannig að við förum heim á leið. Aflinn grillaður og bragðaðist hann vel þrátt fyrir að annað hafi kannski verið ofar á listanum enda steik í boði!
Mánudagurinn annar í hvítasunnu: Einráð og Birgráð hittast! Skoðuðum aðeins umhverfið og vötn í Fellunum, ekki annað hægt að segja en að vötnin þar séu umvafin mikilli náttúrufegurð! Tökum bíltúr á Seyðisfjörð og hendum af bryggjum þar, ekkert gerist en einn ufsi sást elta spinner. Kíkjum í Urriðavatn þegar heim er komið án þess að verða varir við bröndu.
Þriðjudagurinn
Miðvikudagurinn: Við Ágústa höfðum ákveðið að nota góða veðrið og fara með Guðbjörn bróður hennar að veiða. Stefnan var tekin á Hróarstunguna, vorum komin með leyfi í Þórisvatni, en það er víst ekki gríðarleg von um stangarfisk þar, miklu frekar veitt þar í net. Þannig að við serum okkur að Álftavatni, eftir smá vesen að komast þangað vorum við loksins komin að vatninu, það var smá gára á vatninu en það lyngdi mjög fljótlega og þá kom í ljós að vatnið er gjörsamlega stappað af fiski! Tökur úti um allt vatn! Enda leið ekki á löngu að Ágústa var búin að setja í fisk á makríl og landaði honum. Ég reyndi fluguna án árangurs, var duglegur að skipta um flugur og aðferðir en það skilaði ekki meiru en einstaka höggum, því miður. En flotholtsveiðin virtist ætla gefa góða veiði þar sem það var jafn mikinn tíma niðri í vatninu en ofan á því, en fiskurinn var duglegur að éta af ögnlinum. Það var ekki fyrr en ég ákvað að taka mig til og sýna þeim hvernig ætti að festa í fiski að sá næsti kom á land, það var flottur urriði sem tók vel á og var um eitt og hálft pund! En þarna var klukkan orðin hálf tólf og að skella í svarta myrkur þannig að við héldum heim. En þetta vatn er eitthvað sem maður verður duglegur að kíkja á í sumar.
Fimmtudagur: Við Einráð kíktum aðeins í Haugtjarnirnar með spún!!! Bjartsýni dauðans því þær eru ekki dýpri en svo að það er alltaf ALLTAF gróður á spúninum. En okkur tókst að verða gríðarlega blautir í fæturna og drulla út buxurnar!! Góður túr!!
Föstudagur: Veiðifélagið Birgráð fór í Langavatn í fellum og það er bara eitt um það vatn að segja að þar er enginn andskotans fiskur! Reyndar var lofthiti ekki mikill og satt að segja bara helvítis hvassviðri, gæti verið líklegt í stillu.
Laugardagur: Hér var ákveðið að fara í Grímsána heima hjá Einari og skoða þar svæði sem hefur breytt sér mikið milli ára enda malarbotn og gríðarmikið í ánni þarna á laugardaginn. Urðum ekki varir þar, þannig að við stoppuðum á brúnni yfir góða staðinn og sáum fljótlega einn fisk, þá var ekki lengi gert að henda saman stönginni og reynt var að ginna fiskinn framan á spúninn! Það virtist ætla að takast því hann kom á eftir honum og reif í en náði ekki að festa sig... helvítis pungurinn! Þá var farið hinu meginn í hylinn og þar kom einni eitt högg þó ekki sæist fiskur í þetta skiptið. Þegar fullreynt var við þennan konung hylsins var haldið í þriðja skiptið í Haugtjarnirnar og nú skildi veitt! Enda skilst mér að það sé varla hægt að fara fisklaus frá þessum stað! Það var ákveðið að byrja með nýtýndum maðki og floti með tuttugu sentimetra niður í öngul. Og... hann var á í fyrsta kasti! Stökk upp með öngulinn í sér og losaði sig! Flotholtið fór nokkrum sinnum á kaf en aldrei var fest í fiski! Þá ákvað ég að skipta yfir í fluguna og setti undir eitthvað heimatilbúið með gulu og rauðu rassgati, en svörtu stíflökkuðu á kviðinn, hún hafði ekki fengið nafn, en eftir þetta held ég að ég kalli hana Hauginn. Og það var ekki að spyrja að því! Það var taka í fyrsta, öðru og þriðja kasti og þá var hann á! Það var nú ekki mesta tröll sem sögur fara af en þetta var allavega fyrsti fiskur sumarsins á flugu. Á þessum sama stað tók ég svo fjóra fiska og einn stærstan sem var í góðum holdum en reyndar nokkuð stuttur. Einráð var líka kominn með fluguna þarna og fékk fljótlega einn. Svo voru svona einstaka tökur af og til en ekkert eins og var þarna á smá tíma. Það var ekki fyrr en í síðasta kastinu sem síðasti fiskurinn kom á land, þá var ég að kasta á staðnum sem Einráð hafði verið lengstum og því var ákveðið að hætt skildi á toppnum þennan dag, og mun þetta vera í fyrsta skiptið sem ég veiði fisk í síðasta kastinu og farið heim. Ég verð nefninlega alltaf að taka nokkur í viðbót ef það bítur á!
En þetta er sem sagt búin að vera mikil veiðiferða vika og hætt við því að næsta vika verði rólegri hjá mér að minnsta kosti. Einráð ætlar í Grímsána heima hjá sér á eftir og vonandi verður eitthvað til þess að segja frá hér eftir þá ferð. Næstu helgi fer ég svo væntanlega vestur á land í Borgarfjörðinn og þá er aldrei að vita nema maður skelli sér í Meðalfellsvatnið og hitti strákana að sunnan.
Ég hugsa að ég sé að gleyma einhverju hér... það kemur þá bara uppfærsla... en þetta er orðið svo langt að ég er ekki viss um að nokkur hafi náð að lesa hingað niður. En gaman væri að vita í kommentum ef einhver náði því.
Birgráð
»
05.05.2008 20:47:15 / birgrad
Það ætlar að ganga hægt að vora hér fyrir austan. Það er ekki laust við að yfirstjórn Birgráðs sé að verða dálítið pirruð og jafnvel langeyg eftir vori! En það er nú ekki svo að Birgráð hafi setið aðgerðarlaus... Neinei! Hafa verið farnir könnunarleiðangrar á nokkra staði hér. Á sunnudaginn skelli Einráð sér að tékka á Eiðavatni sem ku enn vera ísilagt að mestu og lækurinn sem rennur í það heldur drullugur af þeim litlu leysingum sem hafa hér átt sér stað. Það hindraði Einráð ekki í að einhenda stönginni nokkrum sinnum en ekki með árangri enda aðstæður full hrapalegar.
Birgráð vildi því ekki minni maður vera og fór ásamt spúsu sinni að kanna ástand á vatni Veiðikortsins, nefninlega Urriðavatni. Það er skemmst frá því að segja að það er nánast allt ennþá á ís og ekki nema á örfáum stöðum þar sem lækir renna í og úr vatninu að eitthvað sést af vatninu sjálfu. Við tókum myndir af ósköpunum og hægt að skoða þær á myndasíðunni.
Ekki er laust við að Birgráð sé orðinn dulítið stressaður fyrir komu veiðifélaga að sunnan um komandi hvítasunnuhelgi, hann var jú búinn að lofa hér veiðiparadís á vori með urmul vannýttra veiðitækifæra. En enn eru nokkrir dagar til stefnu fyrir veðurguðina að ganga til liðs við Birgráð og bræða þessa skán ofan af vötnunum... en hvernig sem fer deyr Birgráð ekki ráðalaus! Eitthvað skal farið og eitthvað skal veitt! Hvar, hvernig, og svo framvegis kemur í ljós síðar!
Veriði sæl, takk fyrir mig,
að eilífu
VEIÐI
»
Síður:
1 2